Hvíldardagar

Hvíldardagar er fyrsta skáldsaga Braga Ólafssonar en hún kom út árið 1999 á vegum Bjarts bókaforlags.

“Ég reyni að ímynda mér hver muni koma fyrstur inn í íbúðina mína, snúi ég ekki aftur úr Heiðmörkinni. Og hversu langur tími muni líða þangað til einhver saknar mín. Mögulega tveir og hálfur mánuður, hugsa ég; sá tími sem ég á eftir af sumarleyfinu.” Sögupersóna þessar snjöllu skáldsögu hefur fengið óvenjulangt sumarfrí frá vinnu sinni. Hann ákveður að halda upp í Heiðmörk í dagsferð en sú för fær snöggan og óvæntan endi.