Viðurkenningar og verðlaun

  • Skáldsögurnar Hvíldardagar og Gæludýrin voru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Menningarverðlauna DV.
  • Útvarpsleikritið Sumardagurinn fyrsti fékk fyrstu verðlaun í útvarpsleikritasamkeppni RÚV, Leikskáldafélagsins og Rithöfundasambandsins árið 1995.
  • Tilnefning til Grímuverðlaunanna 2004 sem leikskáld ársins fyrir leikritið Belgíska Kongó, og 2010 fyrir leikritið Hænuungarnir.
  • Skáldsagan Samkvæmisleikir var valin besta skáldsaga ársins 2004 af starfsfólki bókaverslana, og hlaut Menningarverðlaun DV í febrúar 2005.
  • Viðurkenning úr Rithöfundasjóði RÚV árið 2005.
  • Skáldsagan Sendiherrann var valin besta skáldsaga ársins 2006 af starfsfólki bókaverslana. Hún var einnig tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Af Bókmenntavefnum http://100.bokmenntir.is/rithofundur.asp_cat_id=45&author_id=17&lang=1

Bragi fæddist í Reykjavík 11. ágúst 1962. Hann nam spænsku við Háskóla Íslands í einn vetur og við Háskólann í Granada á Spáni 1985 – 1986. Hann hefur unnið ýmis störf í Reykjavík, á póstinum, í banka og plötubúð og var um árabil liðsmaður ýmissa hljómsveita, meðal annars Sykurmolanna og ferðaðist með sveitinni víða um lönd.

Fyrsta bók hans, ljóðabókin Dragsúgur, kom út árið 1986 og síðan hefur hann sent frá sér ljóðabækur, smásagnasafn, leikrit og skáldsögur. Fyrsta skáldsaga hans, Hvíldardagar, var tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 1999 og sú næsta, Gæludýrin, einnig árið 2001. Bragi hlaut Menningarverðlaun DV í bókmenntum 2004 fyrir skáldsöguna Samkvæmisleikir. Sendiherrann var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2008.

Bragi er einn af stofnendum útgáfufélagsins Smekkleysu sem gefið hefur út texta og tónlist og staðið fyrir uppákomum af ýmsu tagi. Bragi hefur þýtt ljóð og skáldsöguna Glerborgin eftir Paul Auster. Verk hans hafa birst í erlendum þýðingum.

Bragi er kvæntur og á fjögur börn. Hann býr í Reykjavík.

Forlag: Edda útgáfa