Einn íslandskokkteil? segir hann.
Nei þakka svo heimskt mikið, herr grossist, sögðu þeir, og sá litli feiti fór að taka skjölin uppúr töskunni hjá sér og raða þeim á borðið.
(úr Guðsgjafaþulu e. Halldór Laxness, bls. 17)
…
…
ÍSLANDSKOKKTEILL
– bjór
– skvetta af koníaki
– skvetta af vískíi
– rauðvín
…
…
Ég kom frammúr sekretéraherberginu aftur meðan Íslandsbersi var niðrá marmaranum að kveðja gesti sína. Aungvar sænskar miljónir á borðinu, aðeins þrjú mjólkurglös fleytifull af íslenskum kokkteil; það fjórða hafði húsbóndinn drukkið sjálfur í botn sem fyr segir.
(úr Guðsgjafaþulu e. Halldór Laxness, bls. 20-21)
…
…
Vorið færði mér óhugnanlegan hlátur fábjánans.
(úr ljóðinu Fyrrum, ef ég man rétt eftir Arthur Rimbaud – þýð. Jón Óskar)