Í gær var það „popp dagsins“, sem ég veit að mæltist vel fyrir hjá að minnsta kosti einum lesanda; hann, þessi „eini“ lesandi, hringdi sérstaklega í mig til að láta mig vita að hann hefði hlýtt á Luciu Popp syngja Händel af mikilli ánægju, allt að því áfergju (sem ég verð að segja að er ekki mjög viðeigandi orðalag þegar rætt er um þessa tónlist Händels). En þetta var í gær. Í dag er nýr dagur. „Í dag“. Og nú er komið að ljóðlistinni. Að „prósaljóði dagsins“. Ljóðið birtist upphaflega á vefnum mbl.is, einmitt „í dag“, þess vegna datt mér í hug að það gæti verið prósaljóð „dagsins“:
DREKINN
„Ég hafði engan áhuga á að stýra þessari nefnd,” segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Brynjar var í morgun settur af sem formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Nýr formaður var kjörinn. Brynjar segir að sú ráðstöfun hafi ekki komið honum á óvart, enda hafi legið fyrir að nýr meirihluti hafi verið orðinn til í nefndinni. Hann segir að honum hafi verið tilkynnt ákvörðunin fyrir fundinn. Þess vegna hafi hann ekki mætt á fundinn. „Ég var drekinn,“ sagði Brynjar og bætti við að honum gremdist ekki niðurstaðan. Þvert á móti væri hann dauðfeginn að vera laus við að stýra þessari nefnd. Hann hefði engan áhuga á þeim málefnum sem að nefndinni snúi. Nefndin hafi upphaflega átt að vera í höndum minnihlutans en að hann hafi svo „setið uppi með hana“.