Blue Hawaii

Það er á horni Bayswater Road og Lækjargötu

sem tveimur skeggjuðum mönnum

gengur illa að finna orð

sem hæfa tíðarandanum,

en „Kæra Susan,

nú hefur Charlie Mingus

slitið streng í hjartanu mínu,”

mælir viðkvæmur liðþjálfi

í fjórðu herdeild hinna hugumstóru.

„Nú get ég aldrei meir

tekið utan um þig af neinni

hringlaga sannfæringu.”

Sviti elskendanna í úthverfi Zürich

sprettur út á hannyrðakonu í Laos,

málmblástursmaður í subbulegum N-Noregskjallara

deyr beiskum dauða í rör sitt,

og af blöðum pálmanna, úr augum grátkvenna

renna skítug tár í

dósir merktar cat liver.

En það er á horni Bayswater Rd. og Lækjargötu,

að baki hverrar hríslu sem þær gægjast;

feimnu glötuðu meyjarnar,

jafn frísklegar og ferskjur sem

velta útaf hillum ávaxtasala

hraðar en nokkur fær keypt.

Leave a Reply